Veigar Atli Magnússon

Portrait of a young man with spiked dark hair wearing a dark T-shirt

Veigar Atli er sjúkraflutningamaður og leiðbeinandi hjá Neyðarþjálfun.

Hann hefur starfað við sjúkraflutninga frá árinu 2022, bæði hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þar sem hann starfar í dag.

Í störfum sínum hefur Veigar öðlast reynslu af bráðaþjónustu utan spítala, þar sem hann sinnir fjölbreyttum verkefnum við mat og meðferð bráðveikra og slasaðra einstaklinga.

Samhliða störfum sínum við sjúkraflutninga hefur Veigar sinnt kennslu í skyndihjálp frá árinu 2023. Hann nýtir þekkingu sína og reynslu af vettvangi við kennslu og leggur áherslu á að þátttakendur öðlist hagnýta færni og öryggi í viðbrögðum við slysum og bráðum veikindum.

Helsta menntun og réttindi á sviði viðbragðsaðila:

  • EMT-B – Emergency Medical Technician – Basic

  • EMT-A – Emergency Medical Technician – Advanced

  • ILS – Immediate Life Support

  • EPILS – European Paediatric Immediate Life Support

Leiðbeinendaréttindi:

  • Leiðbeinendaréttindi í skyndihjálp, RKÍ – 2023

Leiðbeinandi

veigar@neydarthjalfun.is