Haukur Grönli

Haukur hefur starfað við slökkvistörf og viðbragðsmál í yfir tuttugu ár. Hann starfaði fyrstu tíu árin hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem slökkviliðs og sjúkraflutningamaður en flutti síðar til Noregs, þar sem hann starfaði í sex ár hjá slökkviliðinu í Bergen.

Haukur lauk menntun atvinnuslökkviliðsmanna hjá Redningsverket í Svíþjóð og hefur jafnframt lokið stjórnunarnámi fyrir stjórnendur slökkviliða í Noregi. Hann hefur aflað sér víðtækrar sérmenntunar í Noregi á sviði slökkvifræða, meðal annars í almennum slökkvistörfum, fjallabjörgun, notkun körfubifreiða, sporvagnaeldum, skips- og gróðureldum auk kennslufræða.

Hann hefur komið að skipulagningu og kennslu bæði atvinnuslökkviliðsnáms og náms fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn bæði í Noregi og á Íslandi. Eftir að hann flutti aftur til Íslands starfaði Haukur sem vararaslökkvistjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu í 6 ár.

Frá árinu 2022 hefur Haukur helst starfað á sviði öryggismála og áætlanagerðar meðal annars í orku og veitugeiranum og kom síðar að uppbyggingu Versa vottunar, vottunarstofu á sviði öryggis og gæða.

Haukur var ráðinn til Almannavarna í tengslum við eldgos og eldsumbrot á Reykjanesskaga. Þar bar hann ábyrgð á áætlanagerð og framkvæmd hraunkælingar auk annara starfa tengdum öryggi, rýmingum og viðbragðsáætlunum.

Haukur er maðurinn á bak við orðið ,,Hraunkælingarstjóri” sem vakti mikla athygli og var valið orð ársins 2024.

Haukur mun standa að námsefnisgerð og leiðbeinendaþjáfun fyrir námskeið á sviði eldvarna og einnig koma að kennslu á námskeiðum í þeim flokki.

Leiðbeinandi

haukur@neydarthjalfun.is