Eldvarnir og rýming

  • Slökkvitæki

    Notkun slökkvitækja 2 tímar

    Farið létt yfir eðli elds og brunaflokka.

    Hvaða gerð slökkvitækja hentar best við tilteknar aðstæður og hversvegna?

    Endað á verklegri þjálfun þar sem nemendur fá að slökkva eld með slökkvitæki og eldvarnarteppi.

    Mikilvægt námskeið fyrir alla vinnustaði.

  • Slökkvitæki og rýming

    Slökkvitæki og rýming 3 tímar

    Farið yfir eðli elds og þróun bruna í rými. Nemendur fá fræðslu um hvernig eldur kviknar, vex og breiðist út og hvernig má hefta útbreiðslu.

    Hvenær er öruggt að reyna að slökkva eld á öruggan hátt og með hvaða búnaði?

    Hvaða gerð slökkvitækja hentar best við tilteknar aðstæður og hversvegna?

    Endað á verklegri þjálfun þar sem nemendur fá að slökkva eld með slökkvitæki og eldvarnarteppi.

    Mikilvægt námskeið fyrir alla vinnustaði.

  • Rýmingaráætlanir og æfingar

    Rýmingaráætlanir og æfingar

    Við getum aðstoðað fyrirtæki og stofnanir við gerð rýmingar- og viðbragðsáætlana.

    Við skoðum vinnustaðin og aðstoðum stjórnendur við að gera sínar egin viðbragðs- og rýmingaráætlanir.

    Einnig getum við skipulagt rýmingaræfingar fyrir vinnustaði.


  • Eldvarnir og hættuleg efni

    Eldvarnir og hættuleg efni

    Þar sem unnið er með hættuleg efni þarf oft að huga að öðrum hlutum þegar kemur að öryggi og viðbrögðum við óhöppum.

    Við höfum innan okkar raða sérfræðinga sem koma og skoða vinnustaðinn og skipuleggja námskeið fyrir starfsfólk sem vinnur við slíkar aðstæður.